Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Könnun

Hvað á ég að gera

Gleðilegt nýtt ár, folks

06. janúar 2008 klukkan 13:07
Held að ég sé hætt að skrifa hérna, hef engann tíma í það, en ég óska ykkur gleðilegs nýs árs.

Já, Dagmar síðasta helgi var ekki slæm :)

02. desember 2007 klukkan 12:10

hehe, Dammsínan kom í heims og við snúlluðumst sem aldrei fyrr. Náðum næstum að hræða líftóruna úr Þorra þegar Dagmar sleit perluhálsfestinu sína og við stóðum út á götu og orguðum og grétum út hlátri og Dagmar reyndi að ná perlunum úr bæði brjóstahöldum og nærbuxum... rassstykkinu Hlæjandi hehe, en well, svo var verslað eins og vindurinn... meira að segja á aðþjóðlega "standa saman og ekki versla neitt"-deginum neinei, þá keypti Dagmar sér kjól í Karen Millen HAHAHA, hún er snillingur konan!!! En amk helgin var yndisleg, aflöppuð á milli búðaferða og við enduðum endurnærðar í gullskóm eftir hana. Takk fyrir helgina, snilli Glottandi
Síðan hélt lífið bara áfram, vinna og svo tók ég tvo daga í frí í henni til að læra... næsta vika á líka að fara alveg í það. En virka vikan endaði svo á föstudaginn í hálfs árs afmæli hjá mér og tzjellinum Hlæjandi ójei.... við gerðum ekki neitt í tilefni dagsins en tzjellinn var eeeexrtayndislegur og planaði stuff næstu helgi því þá höfum við betri tíma í að njóta þess Brosandi VÍÍÍ, hlakka ekkert smá til, að fara í fínan kjól og borða með honum á leynistað!
En amk ætla að halda áfram að læra, veitir ekki af því og fara síðan í ljós á eftir. Stressið í ár hefur tekið þá ákvörðun að koma fram í vöðvabólgu í baki og herðum sem gerir það að verkum að höfuðverkurinn er sigurvegarinn alveg sama hvað ég geri. Svo ef einhvern langar að smella sér í ljós þá er ég frábær félagi í það því það veitir ekki að því að hita þetta úr mér.
Knús í krús,
Ragnhildur kveður að sinni.

Ringið
2 athugasemdir

Hæ hæ

21. nóvember 2007 klukkan 00:37
...well, þar sem lögreglan í Hafnarfirði er farin að bögga mig aftur þá ætla ég að smella inn hérna einu bloggi. Ekkert gerst hjá mér svo sem... döööh, well, jú. Er komin til baka frá Bandaríkjunum og búin að fara til Danmerkur í heims til Imbu sys og Söru og bróður Þorra. Það var gaman! Námskeiðið úti var líka snilld, og svo var farið í Mall of America... sem var athyglisvert! Fáranlega stórt en maður fékk alls ekkert allt sem manni datt í hug... mér datt alveg margt í hug sem ég fékk ekki þar. En ég fékk loksins að fara í Victoria´s Secret sem er búið að vera draumur leeeeeeengi!!!! Og ég meira að segja sagði einni afgreiðsludömunni það... well, maður getur orðið pínkueinmana að vera einn í heila helgi. En amk búin að redda slatta af jólagjöfum og svonna.
Svo rættist draumurinn, ég fékk stígvélin í afmælis- og jólagjöf frá mömmu og pabba, fannst það meira en æðislegt, þau eru meira en æðisleg. TAKKTAKKTAKK!!!
Og svo varð kallinn minn frjátíu ára, þessi elska. Hann var ánægður með pakkann frá mér, sá hann reyndar daginn áður og þar sem hann var búinn að ákveða að ég ætlaði að gefa honum golfpoka og stærðin passaði ekki þá hélt hann að þetta væri leiðarvísir að golfpokanun, haha. Well, ég gaf honum ekkert golfpoka, ég held ég hafi aldrei gefið neinum neitt sem hann/hún hefur óskað eftir nema að mér hafi dottið það í hug fyrst. Eins og þeir sem þekkja mig þá verð ég alltaf að fá hugmyndina fyrst... og eiga hana... hehe, neinei, djók. Er nú kannski ekki svo slæm en mér finnst mest gaman að gefa fólki hluti sem ég finn upp á sjálf, ég reyni að finna akkúrat hlutinn sem passar manneskjunni frá mér. Og ef lögreglan í Hafnarfirði ætlar að bögga mig e-ð með þetta þá... veiti ég mótstöðu!!!
Well, þetta var helst í fréttum, held ég ætti að fara að sofa núna, búin að fá flensuna og hún er ekki alveg að vilja fara, er samt búin að vera verulega dónaleg og segja henni að drulla sér í burt... held ég þurfi að hringja á lögguna til að losna við hana. Svo, ætla að halda áfram að reyna að sofa hana úr mér og mæta eldsnemma í klippingu á morgun, íha, hætt að sjá út úr lubbanum!!! Toni and guy, ég er tilbúin að hárþvott og hausnudd hjá þér í fyrró.
Þanngað til næst... sem verður kannski fyrr en eftir einn mánuð,  þá knús í krús!!
og ein góð lína úr Friends sem ég hef aldrei náð fyrr en í dag... it´s arabian princess day at work, leave me alone!!
R-ið
Ringið
1 athugasemd

HAHAHAHA, ég er ansi hrædd...

09. október 2007 klukkan 12:45
... um að Dagmar sé búin að fá nóg af mér sem bloggara!!! En ég ætla ekkert að láta það aftra mér í því að smella hérna inn færslu. Svona er staðan í dag...

Ég er í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í Madison, Wisconsin. Þokkalega fínt bara, er að taka námskeið sem tengist vinnunni minni. Það er alveg tær snilld, var búin að gleyma hvað er gaman að vera í skóla og hafa áhuga á því sem verið er að kenna, loooove it! Er búin að fara á Starbucks, eða Starbuckets eins og ég lét út úr mér í síðustu viku, vitlaus maður!! Er líka búin að fá mér BurgerKing, þar sem ég bað um Whooper, ekki Whopper... það er amk gott að maður getur fengið fólk til að hlægja, það er víst alveg bráðhollt. Well, þetta er allt saman ágætt hérna, fólkið er amk alveg sérstaklega indælt. Ekki orðin hrifin af neinum mat hérna ennþá... nema kannski cookie-sunum, en það er ekki eins og maður ætli að fara að nærast á þeim í viku!! Og íkornarnir eru út um aaallt og alveg ógeðslega sætir, en Jakob sagði að þeir væru brjálaðir svo ég er alveg búin að láta þá vera... amk ennþá, það er verra að koma með hundaæði heim. Jæja, annars ekki mikið að segja um Bandaríkin.
Er reyndar líka að fara til DK með sætasta manni í heimi 25. oktober, það verður ekki leiðinlegt. Systirin á afmæli og svo fær maður að hitta bróðir Þorranns og Söruna, loooong time no see. Miss u a bunch, systir og Sara! Þorri!!! I can´t wait to see you! Kannski ég bloggi meira hérna í USA eða þá að ég geri það bara þegar ég kem heim, Mall of America er eftir, ætla pínku að missa mig þarHlæjandi Well, until then, design of high voltage powerlines and foundations og svo sætabrauðið heima.
C u all, knús í krús
Ringið
5 athugasemdir

Vááá, ég er lélegur bloggari!!!

01. september 2007 klukkan 17:51
En það sem er helst í fréttum síðan ég skrifaði síðustu færslu er...
ég flutti inn til Adda og er búin að vera meðleigjandinn hans í mánuð, eða sambýliskona sem var ekki vinsæl lína, haha
Addi er samt að flytja út og dýrið mitt kemur inn í staðinn, líst EKKI illa á það Brosandi
Ég fór í skotferð til Spánar um daginn í 4 daga, það var gaman, þó að eitt hraðbrautaratvik hafi ansi vel hrist upp í mér
Eeeee, ég veit ekki hvort ég er í skóla í vetur og ekki spyrja mig út í það!!!
Sooooooooooooo, knús í krúúúúús... þanngað til næst
Ringið
2 athugasemdir

Pleefggh

04. ágúst 2007 klukkan 00:25
... svo maður er fluttur, búinn að þrífa og skila íbúðinni hennar ömmu, það var skrítin tilfinning. Hún hefur alltaf átt heima þarna, þegar ég var lítil fór ég oft í heimsóknir til ömmu í Reykjavík og var hjá henni í nokkra daga í Laugarnesinu. Fannst til dæmis alltaf yndislegast í heimi að finna lyktina á ganginu á blokkinni, minnti mig á hana. En well, það endar allt á einhverjum tímapunkti.
So núna er maður fluttur inn með strák... reyndar ekki kærastanum mínum en ég meina, hvað getur maður verið ríkur að eiga bæði kærasta og sambýlismann og báðir gera allt fyrir mann... allt innan skikkanlegra marka samt! En well, vikan er búin að vera geðveik, pakka, flytja, þrífa, rífa niður skáp í nýja húsnæðinu og mála og parketleggja plús góður slatti af vinnuálagi. Verð samt að viðurkenna að ég hefði aldrei getað þetta nema með hjálp góðs fólks og núna er yndið mitt að parketleggja herbergið mitt.
Well, versló byrjar í seinni kantinum, fer á morgun í bústað norður til múttunnar og pabbans, og frænku og bróðurs og fjölskyldunnar hans... það verður fjör, þó svo að ég hefði verið til í að vera heima og koma mér betur fyrir og vinna, það er alltaf nóg að gera og aðeins rúmlega það núna.
Jei, svo er það Spánn í nokkra daga seinni part mánaðarins og USA á háspennulínunámskeið í okt, svaðaleg dagskrá :)
En jæja, nóg um mig
hvað um ykkur?
Ringið
2 athugasemdir

Jei

20. júlí 2007 klukkan 13:59
Snilldarroadtrip, tær snilld
Staffadjamm í kvöld, býst ekki við neinu nema tærri snilld SUMARGRILL
er rappari og er búin að redda búning og attitudeið er að nálgast hámarkið :)
ta ta

Í fréttum í þetta helst

08. júlí 2007 klukkan 16:39
... ég nenni ekki að sinna blogginu mínu
ég hef meira en nóg að gera
og eyði auðum stundum með kærastanum, vinunum eða fjölskyldumeðlimum
er ekki húsnæðislaus lengur
það reddaðist nánast strax
ætla að leigja með Adda sæta
er að fara í 6 daga roadtrip með Aldísi ekki á morgun heldur hinn
næ í hana út á Keflavík annaðkvöld VÍÍÍ
endum í menntóvinkvennaparty hjá Björgu skvís á Norðfirði
snilld snilld snilld
hef ekkert meir að segja
knús í krús

Jei, húsnæðisleysi

07. júní 2007 klukkan 12:37
Jei, það er búið að selja íbúðina hennar ömmu, jei, ég þarf að flytja út fyrir 1. ágúst... mánuði fyrr en ég hélt, en amk wrassgat, þetta reddast!
Ringið
1 athugasemd

Jæja, komin til baka

29. maí 2007 klukkan 15:03
sauðburður búinn í ár
var gaman
en erfitt
ekki mikill svefn
það var dauði
en meira líf
það var snjór
en meiri rigning
slatti vindur
og varla nein sól

amk komin til  rvk
búin að fá sushi
búin að fá "sushi"
og rauðvín
ekki mikill svefn
vantar bara ís úr vesturbænum
og eitt knús á dag
Ringið
1 athugasemd