Hæ hæ
21. nóvember 2007 klukkan 00:37
...well, þar sem lögreglan í Hafnarfirði er farin að bögga mig aftur þá ætla ég að smella inn hérna einu bloggi. Ekkert gerst hjá mér svo sem... döööh, well, jú. Er komin til baka frá Bandaríkjunum og búin að fara til Danmerkur í heims til Imbu sys og Söru og bróður Þorra. Það var gaman! Námskeiðið úti var líka snilld, og svo var farið í Mall of America... sem var athyglisvert! Fáranlega stórt en maður fékk alls ekkert allt sem manni datt í hug... mér datt alveg margt í hug sem ég fékk ekki þar. En ég fékk loksins að fara í Victoria´s Secret sem er búið að vera draumur leeeeeeengi!!!! Og ég meira að segja sagði einni afgreiðsludömunni það... well, maður getur orðið pínkueinmana að vera einn í heila helgi. En amk búin að redda slatta af jólagjöfum og svonna.
Svo rættist draumurinn, ég fékk stígvélin í afmælis- og jólagjöf frá mömmu og pabba, fannst það meira en æðislegt, þau eru meira en æðisleg. TAKKTAKKTAKK!!!
Og svo varð kallinn minn frjátíu ára, þessi elska. Hann var ánægður með pakkann frá mér, sá hann reyndar daginn áður og þar sem hann var búinn að ákveða að ég ætlaði að gefa honum golfpoka og stærðin passaði ekki þá hélt hann að þetta væri leiðarvísir að golfpokanun, haha. Well, ég gaf honum ekkert golfpoka, ég held ég hafi aldrei gefið neinum neitt sem hann/hún hefur óskað eftir nema að mér hafi dottið það í hug fyrst. Eins og þeir sem þekkja mig þá verð ég alltaf að fá hugmyndina fyrst... og eiga hana... hehe, neinei, djók. Er nú kannski ekki svo slæm en mér finnst mest gaman að gefa fólki hluti sem ég finn upp á sjálf, ég reyni að finna akkúrat hlutinn sem passar manneskjunni frá mér. Og ef lögreglan í Hafnarfirði ætlar að bögga mig e-ð með þetta þá... veiti ég mótstöðu!!!
Well, þetta var helst í fréttum, held ég ætti að fara að sofa núna, búin að fá flensuna og hún er ekki alveg að vilja fara, er samt búin að vera verulega dónaleg og segja henni að drulla sér í burt... held ég þurfi að hringja á lögguna til að losna við hana. Svo, ætla að halda áfram að reyna að sofa hana úr mér og mæta eldsnemma í klippingu á morgun, íha, hætt að sjá út úr lubbanum!!! Toni and guy, ég er tilbúin að hárþvott og hausnudd hjá þér í fyrró.
Þanngað til næst... sem verður kannski fyrr en eftir einn mánuð, þá knús í krús!!
og ein góð lína úr Friends sem ég hef aldrei náð fyrr en í dag... it´s arabian princess day at work, leave me alone!!
R-ið

Ringið