Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Könnun

Hvað á ég að gera

HAHAHAHA, ég er ansi hrædd...

09. október 2007 klukkan 12:45
... um að Dagmar sé búin að fá nóg af mér sem bloggara!!! En ég ætla ekkert að láta það aftra mér í því að smella hérna inn færslu. Svona er staðan í dag...

Ég er í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í Madison, Wisconsin. Þokkalega fínt bara, er að taka námskeið sem tengist vinnunni minni. Það er alveg tær snilld, var búin að gleyma hvað er gaman að vera í skóla og hafa áhuga á því sem verið er að kenna, loooove it! Er búin að fara á Starbucks, eða Starbuckets eins og ég lét út úr mér í síðustu viku, vitlaus maður!! Er líka búin að fá mér BurgerKing, þar sem ég bað um Whooper, ekki Whopper... það er amk gott að maður getur fengið fólk til að hlægja, það er víst alveg bráðhollt. Well, þetta er allt saman ágætt hérna, fólkið er amk alveg sérstaklega indælt. Ekki orðin hrifin af neinum mat hérna ennþá... nema kannski cookie-sunum, en það er ekki eins og maður ætli að fara að nærast á þeim í viku!! Og íkornarnir eru út um aaallt og alveg ógeðslega sætir, en Jakob sagði að þeir væru brjálaðir svo ég er alveg búin að láta þá vera... amk ennþá, það er verra að koma með hundaæði heim. Jæja, annars ekki mikið að segja um Bandaríkin.
Er reyndar líka að fara til DK með sætasta manni í heimi 25. oktober, það verður ekki leiðinlegt. Systirin á afmæli og svo fær maður að hitta bróðir Þorranns og Söruna, loooong time no see. Miss u a bunch, systir og Sara! Þorri!!! I can´t wait to see you! Kannski ég bloggi meira hérna í USA eða þá að ég geri það bara þegar ég kem heim, Mall of America er eftir, ætla pínku að missa mig þarHlæjandi Well, until then, design of high voltage powerlines and foundations og svo sætabrauðið heima.
C u all, knús í krús
Ringið
5 athugasemdir